velkomin á

North - inn Guesthouse and Cabin

Svalbarðseyri, í hjarta Eyjafjarðar

Um Okkur

North-inn Guesthouse and cabin

North-Inn Guesthouse and cabin er staðsett á Svalbarðseyri, 12 mínútna akstri frá miðbæ Akureyrar, höfuð stað Norðurlands.

Við bjóðum upp á bæði gistiheimili og bústaði. Á gistiheimilinu eru 4 herbergi, 1 stórt fjölskylduherbergi sem er með sér baðherbergi og sturtu en hin þrjú herbergi deila snyrtingu og sturtu. Öll herbergin hafa aðgang að sameiginlegu eldhúsi, ísskáp sem og setustofu með snjall sjónvarpi.

2 bústaðir eru einnig á svæðir, þeir eru 38 fm hvor, hafa eitt svefnherbergi sem er með hjónarúmi og svefnsófa sem hentar fyrir börn. Stofa og eldhús eru samliggjandi. Heitur pottur er við annan bústaðinn.

Úr öllum herbergjum og bústöðum er dásamlegt útsýni, þar sem þú getur séð út á sjó, yfir fjörðinn á Tröllaskagann eða út fjörðinn. Yfir vetrarmánuðina geturðu horft á norðurljósin dansa meðan miðnætursólin gleður augað yfir sumarið.

Bústaðarnir

Tveir 38m2 bústaðir

Við bjóðum upp á 2 bústaði í útleigu. Bústaðirnir eru hvor um sig 38 fm að stærð, í þeim er eitt svefnherbergi með hjónarúmi og svo 130 cm svefnsófa fyrir börn. Stofa og eldhús eru samliggjandi, en þar má meðal annars finna snjall sjónvarp, nespresso kaffivél, ísskáp, eldavélahellu og borðbúnað.

Heitur pottur er við annan bústaðinn.

Summer House

Quisque laoreet venenatis

Lorem ipsum dolor sit amet, consectetur adipiscing elit. Cras odio massa, efficitur et fermentum nec, cursus non urna. Integer id ex accumsan, lobortis metus sit amet, porta sapien. In euismod velit eros, eu suscipit turpis euismod porta.
Gistiheimili

Við bjóðum upp á 4 herbergi á gistiheimilinu.

Herbergi 6 er fjölskyldu herbergi, það er hefur sér baðherbergi með sturtu. Herbergið er í raun 2 herbergi, stórt herbergi með hjónarúmi og einbreiðu rúmi, ásamt litlu auka herbergi með einbreiðu rúmi í. Gangur tengir þessi herbergi saman ásamt snyrtingunni.

Herbergi 7 og 8 eru minnstu herbergin okkar, þau eru er tveggja manna herbergi, það er, þar eru 2 eins manns rúm.

Herbergi 9 er með einu hjónarúmi ásamt tveimur þægilegum stólu til að hvíla lúin bein á. Herbergi 7-9 deila snyrtingu og sturtu, snyrtingin og sturta er þó ekki í sama rými.

Yfir vetrarmánuðina er möguleiki á að leigja allt gistiheimilið í einum pakka, hentar einstaklega vel fyrir skíðaferðina norður fyrir vinapör, fjölskyldur nú eða fyrir íþróttalið.

Hvalaskoðun

Allir okkar gestir fá sendan afsláttarkóða hjá Northsailing , kóðinn gildir sem 15% afsláttur af öllum hvalskoðunum hjá þeim, en þau bjóða uppá hvalaskoðun frá bæði Hjalteyri sem er í um 30 mín aksturfjarlægð frá North-inn og frá Húsavík, sem er í um klukkustundar akstri frá North-inn.

Afþreying

Stutt er í margar helstu náttúruperlur norðurlands frá North-Inn Guesthouse and Cabin, svo sem Goðafoss, Mývatn, Dettifoss, Ásbyrgi, Húsavík sem og Siglufjörður og Skagafjörður. Hvort sem þig langar að sjá einstakar náttúrperlur, fara í River Rafting, Hvalaskoðun, hestbak, skoða söfn eða annað, þá eru miklar líkur á að það sé innan seilingar. Svalbarðseyri liggur við Demantshringinn sem er um 250 km dagsleið sem sýnir allar helstu perlur norðausturlands.
Bóka gistingu

Hér geturðu bókað gistingu hjá North-inn

Hafa Samband

Ekki hika við að heyra í okkur

Er eitthvað óljóst? Vantar þig frekari upplýsingar? Ekki hika við að heyra í okkur. Þú getur náð á okkur á samfélagsmiðlunum