North-Inn Guesthouse and cabin er staðsett á Svalbarðseyri, 12 mínútna akstri frá miðbæ Akureyrar, höfuð stað Norðurlands.
Við bjóðum upp á bæði gistiheimili og bústaði. Á gistiheimilinu eru 4 herbergi, 1 stórt fjölskylduherbergi sem er með sér baðherbergi og sturtu en hin þrjú herbergi deila snyrtingu og sturtu. Öll herbergin hafa aðgang að sameiginlegu eldhúsi, ísskáp sem og setustofu með snjall sjónvarpi.
2 bústaðir eru einnig á svæðir, þeir eru 38 fm hvor, hafa eitt svefnherbergi sem er með hjónarúmi og svefnsófa sem hentar fyrir börn. Stofa og eldhús eru samliggjandi. Heitur pottur er við annan bústaðinn.
Úr öllum herbergjum og bústöðum er dásamlegt útsýni, þar sem þú getur séð út á sjó, yfir fjörðinn á Tröllaskagann eða út fjörðinn. Yfir vetrarmánuðina geturðu horft á norðurljósin dansa meðan miðnætursólin gleður augað yfir sumarið.
Við bjóðum upp á 2 bústaði í útleigu. Bústaðirnir eru hvor um sig 38 fm að stærð, í þeim er eitt svefnherbergi með hjónarúmi og svo 130 cm svefnsófa fyrir börn. Stofa og eldhús eru samliggjandi, en þar má meðal annars finna snjall sjónvarp, nespresso kaffivél, ísskáp, eldavélahellu og borðbúnað.
Heitur pottur er við annan bústaðinn.
Herbergi 6 er fjölskyldu herbergi, það er hefur sér baðherbergi með sturtu. Herbergið er í raun 2 herbergi, stórt herbergi með hjónarúmi og einbreiðu rúmi, ásamt litlu auka herbergi með einbreiðu rúmi í. Gangur tengir þessi herbergi saman ásamt snyrtingunni.
Herbergi 7 og 8 eru minnstu herbergin okkar, þau eru er tveggja manna herbergi, það er, þar eru 2 eins manns rúm.
Herbergi 9 er með einu hjónarúmi ásamt tveimur þægilegum stólu til að hvíla lúin bein á. Herbergi 7-9 deila snyrtingu og sturtu, snyrtingin og sturta er þó ekki í sama rými.
Yfir vetrarmánuðina er möguleiki á að leigja allt gistiheimilið í einum pakka, hentar einstaklega vel fyrir skíðaferðina norður fyrir vinapör, fjölskyldur nú eða fyrir íþróttalið.
Er eitthvað óljóst? Vantar þig frekari upplýsingar? Ekki hika við að heyra í okkur. Þú getur náð á okkur á samfélagsmiðlunum